München · Alparnir · Norður-Ítalía · Toskana

Ítalíuferðin

Þrjár útfærðar leiðir frá München suður í vínhjarta Toskana — matur, smábæir og vín í forgangi, vendemmia í september. Berðu saman útgáfurnar, skoðaðu kort hverrar, eða settu saman þína eigin ferð.

3
Útfærðar leiðir
15–21
Nætur
8+
Vínhéruð & borgir
Um ferðina

Ein leið, þrjár persónur

Allar þrjár byrja í München og enda í Chianti — vínhjarta Toskana — með matar- og smábæjarforgang og vendemmia (vínuppskeru) í september. Munurinn er hvað gerist á milli: ströndin og Barolo í vestri, rómantíkin og Feneyjar í austri, eða alpafjöllin í Dólómítunum. Akstur dreifist í 1–3 klst búta — aldrei heill dagur í bíl.

Veldu þína

Útgáfurnar þrjár

Smelltu þér inn á hverja fyrir ítarlega dagur-fyrir-dag yfirferð, gagnvirkt kort og myndir.

Útgáfa 1

Vesturleiðin

15–16 nætur · um Tórínó & Genúa

Sjávarkaflinn og litríku þorpin í Cinque Terre, pestó í Genúa, og Barolo/Barbaresco-vín í Langhe. Endar í Chianti.

StelvioCinque TerreBarolo
Útgáfa 2

Austurleiðin

21 nótt · um Verona & Feneyjar

Full þriggja vikna ferð. Rómantíkin í Verona með Amarone-víni, þrjár nætur í Feneyjum, Garda-vatn. Beinni leið.

VeronaFeneyjarAmarone
Útgáfa 3

Dólómíta-leiðin

20 nætur · alpafjöll + Feneyjar

Fjalla- og náttúruþyngst. Fjórar nætur í Dólómítunum (Alpe di Siusi, Tre Cime), suður-týrólskt vín, svo Verona → Feneyjar → Chianti.

DólómítarTre CimeAlto Adige
Hlið við hlið

Samanburður

AtriðiV1 · VesturV2 · AusturV3 · Dólómítar
Lengd15–16 nætur21 nótt20 nætur
FjallaaksturStelvio-passinnStelvio-passinnDólómíta-passarnir (4 nætur)
StórborgMílanó + TórínóMílanó(engin — fjöll í staðinn)
Sjór / ströndCinque Terre ✓
VatnalandLake ComoComo + GardaGarda + Lago di Braies
AðalvínBarolo / BarbarescoAmarone / ValpolicellaAmarone + Alto Adige
EinkennisborgGenúa (pestó)FeneyjarFeneyjar + Cortina
EndirChianti / ToskanaChianti / ToskanaChianti / Toskana
Best fyrirStrönd, fjölbreytniBorgir, rómantík, síkiFjöll, náttúru, göngur
Landfræðin

Allar leiðirnar á korti

Allar þrjár sameina sömu byrjun (München) og endi (Toskana) en velja ólíkar leiðir suður.

V1 Vesturleið V2 Austurleið V3 Dólómítar Upphaf (München)
Smakk af því sem bíður

Augnablik úr ferðinni